Ferðaþjónustan í Grunnavík

 

 


Ferðaþjónustan í Grunnavík býður fjölbreytta þjónustu í náttúruperlunni Grunnavík í Jökulfjörðum. Þar má nefna svefnpokagistingu, tjaldstæði, eldunaraðstöðu, sturtu og margt fleira. Ferðaþjónustan rekur einnig farþega og þjónustubátinn Ramónu og býður bátsferðir í Grunnavík og aðra staði í Jökulfjörðum og á Hornströndum.

Í Grunnavík er tilvalið að njóta einstakrar náttúrufegurðar í stórbrotnu umhverfi í nálægð við helstu perlur Jökulfjarða og Hornstranda. Áætlunarsiglingar eru í boði frá Bolungarvík til Grunnavíkur, Sléttu, Hesteyrar og Aðalvíkur. Leiguferðir eru í boði til annarra staða svo sem Hornvíkur.

Dagsferðir eru í boði fyrir hópa til Grunnavíkur þar sem í boði er bátsferð, stutt gönguferð að kirkjunni í Grunnavík og kaffi og meðlæti drukkið að Sútarabúðum að lokinni gönguferð. Mikilvægt er að panta ferðir með góðum fyrirvara í síma 862-8411 eða 866-5491.

 

 Ferðaþjónustan Grunnavík Tel: 8628411 - 8665491   grunnavik@grunnavik.is                              

 

 

Flettingar í dag: 106
Gestir í dag: 31
Flettingar í gær: 102
Gestir í gær: 34
Samtals flettingar: 25046
Samtals gestir: 6344
Tölur uppfærðar: 4.9.2010 19:33:32