05.04.2010 20:23
Gamla Fagranesið við bryggju í Grunnavík 1958
Gamli spítu Fagginn við bryggju í Grunnavík 1958 ;;;; Húsið fyrir ofan bryggjuna er Salthúsið en þar var verbúð uppi með eldhúskrók fyrir ráðskonu, fiskverkunin var niðri í Norður endanum en skúrinn Austan við sem er næstur á myndinni var beitningaskúrinn
Mynd Einar Alexsandersson frá Dynjanda í Leirufirði , úr safni Jóns Þór Benediktssonar á Ytri Bakka við Eyjafjörð -Alexsandersonar frá Dynjanda.
Er að leita að gömlum myndum úr Grunnavík, Jökulfjörðum, Sléttuhreppi og af Ströndum Norður fyrir menningartengda ferðaþjónustu að Sútarabúðum í Grunnavík:: Þeir sem vilja leggja mér lið við myndasöfnun fyrir verkefnið geta haft samband við mig með tölvupósti eða í síma 456-4664 eða gsm.8628411 : ::
Það er hægt að senda mér myndir á tölvupósti og svo get ég komið á staðinn og skannað inn myndir svo ekki þurfa myndir að fara úr húsi, er með réttu græjuna til að ferðast með í þetta verkefni og fer í það að fullum krafti næsta vetur og verð þá ma. á Eyjafjarðarsvæðinu og víðar::: Er að sækjast eftir öllu mögulegu myndefni sem er til frá gamla tímanum:::
Vil sérstaklega geta þess að myndir sem þikja ekki merkilegar eru oft mestu perlurnar til að skoða::::
Myndir af búskaparháttum , mannlífi, dýralífinu og útgerðin verður sett upp eins og hægt er því saga útvegsbændanna á þessu svæði er risastór miðað við íbúafjöldann í þessu útvegs-bænda samfélagi sem var á heimsmælikvarða::
Skrifað af FíG
Flettingar í dag: 40
Gestir í dag: 27
Flettingar í gær: 163
Gestir í gær: 70
Samtals flettingar: 95537
Samtals gestir: 35246
Tölur uppfærðar: 6.2.2012 17:20:21
