Fréttir

24.8.2010

Myndir sumarið 2010

Myndir frá sumrinu.
Sútarabúðir

Séð út Grunnavíkina

Kumlá Maríuhorn í baksýn

Myndir Gulli Hólm, júlí 2010.

Skrifað 24.8.2010 kl. 20:48 af FíG

Bein slóð á færslu

8.7.2010

Síminn á Sútarabúðum er 854-8263

Sími 854-8263  hjá ferðaþjónustunni á Sútarabúðum í Grunnavík þangað til búið er að tengja og ganga frá nýja símkerfinu sem er verið að setja upp,
 læt vita um leið og búið er að tengja

Skrifað 8.7.2010 kl. 18:37 af FíG

Bein slóð á færslu

3.6.2010

Vöruflutningaferðir



Vöruflutningur til Grunnavíkur   Laugard. 12. júní  laust pláss fyrir flutning á Jökulfjarðasvæðið::  Ferðinni frestað um viku vegna óviðráðanlegra ástæðna.
Það þarf að láta vita ákveðið með fyrirvara 

Vöruflutningaferð á stór Jökulfjarðasvæðið fyrirhuguð 4. júlí.

Vöruflutningaferð til Fljótavíkur um síðustu helgi gekk eins og í sögu::::

Þar sem rekstrarliðir báta eru orðnir mjög háir þá bjóðum við fólki á þessum svæðum vöruferðir  á ákveðnum tímum sem hægt er að sameinast um til að lágmarka kostnað því sérferðir eru einfaldlega dýrar.

Sími Friggi 862-8411:

Skrifað 3.6.2010 kl. 21:15 af FíG

Bein slóð á færslu

26.4.2010

Ný heimasíða úr Eyjafirði ttv.is


Til hamingju með nýja heimasíðu    ttv.is   Eigandi þessarar nýju síðu er Jón Þór Benediktsson  Alexssanderssonar frá Dynjanda í Jökulfjörðum::: búsettur á Ytri Bakka við Hjalteyri í Eyjafirði

Skrifað 26.4.2010 kl. 21:09 af FíG

Bein slóð á færslu

20.4.2010

Útsýnisferð sumardaginn fyrsta

Siglt verður frá Bolungarvík kl.09.00 með Bjarnarnesinu til að Sæbóli í Aðalvík og stoppað þar í ca.2 klst.
Þaðan siglt til Grunnavíkur og stoppað þar í ca. 2 klst. fólk þarf að hafa með sér nesti  og hlýan fatnað.  Leiðsögumaður  Friggi Jó.    skipstjóri Siggi Hjartar
Nokkur sæti laus.  
Verð kr. 5.000 pr. mann  Pantanir í síma  892-3652 eða á  bjarnarnes.is.

Ófæra  á Staðarhlíð í Jökulfjörðum  flott myndefni . Þarna siglum við alveg uppað ma.
:: mynd Friggi Jó. 2010
.
Ritur og Ritaskörð , þarna siglum við mjög nálagt ásamt mörgum öðrum perlum til myndatöku
Mynd Friggi Jó. 2010

Skrifað 20.4.2010 kl. 18:58 af FíG

Bein slóð á færslu

5.4.2010

Gamla Fagranesið við bryggju í Grunnavík 1958


Gamli spítu Fagginn við bryggju í  Grunnavík  1958  ;;;; Húsið fyrir ofan bryggjuna er  Salthúsið  en þar var verbúð uppi með eldhúskrók fyrir ráðskonu, fiskverkunin var niðri í Norður endanum en skúrinn Austan við sem er næstur á myndinni var beitningaskúrinn
Mynd Einar Alexsandersson frá Dynjanda í Leirufirði , úr safni  Jóns Þór Benediktssonar á Ytri Bakka við Eyjafjörð   -Alexsandersonar frá Dynjanda.

Er að leita að gömlum myndum úr Grunnavík, Jökulfjörðum, Sléttuhreppi og af Ströndum Norður fyrir menningartengda ferðaþjónustu að Sútarabúðum í Grunnavík:: Þeir sem vilja leggja mér lið við myndasöfnun fyrir verkefnið geta haft samband við mig með tölvupósti eða í síma 456-4664 eða gsm.8628411 : ::
Það er hægt að senda mér myndir á tölvupósti og svo get ég komið á staðinn og skannað inn myndir svo ekki þurfa myndir að fara úr húsi, er með réttu græjuna til að ferðast með í þetta verkefni og fer í það að fullum krafti næsta vetur og verð þá ma. á Eyjafjarðarsvæðinu og víðar::: Er að sækjast eftir öllu mögulegu myndefni sem er til frá gamla tímanum:::
 Vil sérstaklega geta þess að myndir sem þikja ekki merkilegar eru oft mestu perlurnar til að skoða::::
Myndir af búskaparháttum , mannlífi, dýralífinu og útgerðin verður sett upp eins og hægt er því saga útvegsbændanna á þessu svæði er risastór miðað við íbúafjöldann í þessu útvegs-bænda samfélagi sem var á heimsmælikvarða:: 

Skrifað 5.4.2010 kl. 20:23 af FíG

Bein slóð á færslu

18.3.2010

Siglingar og gönguferðir

Gönguferðin á föstud.langa kl.10.00 frá Bol. til Höfðastrandar,,,, gengið þaðan til Grunnavíkur ,,,,, sett verður aukaferð á laugardeginum ef þarf.

Fararstjóri og leiðsögumaður í föstudagsferðinni    Snorri Grímsson
Fararstjóri og leiðsögumaður í laugardagsferðinni   Friggi Jó.

Verð kr. 7.000 pr. mann sigling og kaffihlaðborð

Pantanir í síma 892-3652

Siglingar frá Bolungarvík í útsýnis og myndatökuferðir um Jökulfirði um páskana og hvenær sem er með leiðsögn þegar veður leyfir. Leiðsögumaður Jón Friðrik ferðabóndi í Grunnavík

Siglt með Sigga Hjartar á Bjarnarnesinu frá Bolungarvík sjá    bjarnarnes.is    uppl.í síma 892-3652

Skrifað 18.3.2010 kl. 0:15 af FíG

Bein slóð á færslu

13.3.2010

Flott ferðasumar framundan í Grunnavík

Katrín Lind ,Jón Sverrir Friðriksson, Rakel Sara og Drífa Steindórsdóttir 

SÚTARABÚÐIR Í GRUNNAVÍK.
Ferðalangar frá Akureyri  Katrín Lind ,Jón Sverrir Friðriksson, Rakel Sara og Drífa Steindórsdóttir.


Sumarið lítur vel út í gistingunni og ætlar að vera á svipuðu róli og undanfarin ár en mun meira um dagsferðir þar sem verður boðið upp á kvöldsiglingar og dagsferðir til Grunnavíkur frá Bolungarvík með ákveðnum pakkatilboðum í samstarfi við aðra aðila í ferðaþjónustu bæði í siglingum og annari afþreyingu sem verður í boði  fyrir hópa og einstaklinga báðu megin við Djúp.

Skrifað 13.3.2010 kl. 3:38 af FíG

Bein slóð á færslu

13.3.2010

Gönguferð um Páska, lágmark 10 manns

Gengið frá Höfðaströnd til Grunnavíkur , kaffi, kakó og meðæti á Sútarabúðum að lokinni göngu.

Bátsferð frá Bolungarvík föstudaginn langa kl 10.00 áætlaður komutími til Bolungarvíkur aftur kl.17.00

Nánari útfærsla á ferðinni strax eftir helgi

Skrifað 13.3.2010 kl. 2:20 af FíG

Bein slóð á færslu

10.3.2010

Ferðaþjónustan Sútarabúðum í Grunnavík

Það hafa verið settar af stað gróusögur um að við séum hætt með ferðaþjónustu í Grunnavík ofl. bull er haft eftir liðinu sem ég ætla ekki að eltast við hér.

En því miður hefur þetta virkað hjá viðkomandi aðila eða aðilum því við erum þegar búin að missa nokkuð af viðskiftum til okkar ferðaþjónustu vegna þessa ljóta leiks:

Sem er mjög alvarlegur hlutur og er þegar búið að skaða okkur mikið og maður stendur berskjaldaður gagnvart þessu því það virðast hafa breiðst víða:

Eitt er víst að við erum ekki að hætta í ferðaþjónustu í Grunnavík og munum heldur vera að auka við ferðamannatímann bæði sumar og er verið að vinna á fullu í uppsetningu vetrarferða með bæði innlendum og erlendum aðilum og eru það ferðir til Grunnavíkur og Jökulfjarða:

Skrifað 10.3.2010 kl. 20:36 af FíG

Bein slóð á færslu

10.3.2010

Bloggsíðan mín friggi.123.is

Skoða nánar

10.3.2010

Sumarið 2010

Skoða nánar

10.3.2010

Vetrarferðir til Grunnavíkur

Skoða nánar

10.3.2010

Vöruflutningar.

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 106
Gestir í dag: 31
Flettingar í gær: 102
Gestir í gær: 34
Samtals flettingar: 25046
Samtals gestir: 6344
Tölur uppfærðar: 4.9.2010 19:33:32