Ferðaþjónustan Grunnavík
Ferðaþjónustan Grunnavík býður fjölbreytta þjónustu í náttúruperlunni
Grunnavík í Jökulfjörðum. Þar má nefna svefnpokagistingu, tjaldstæði, eldunaraðstöðu,
sturtu og margt fleira. Ferðaþjónustan rekur einnig farþega og þjónustubátinn Ramónu
og býður bátsferðir í Grunnavík og aðra staði í Jökulfjörðum og á Hornströndum. Í Grunnavík er tilvalið að njóta einstakrar náttúrufegurðar í stórbrotnu
umhverfi í nálægð við helstu perlur Jökulfjarða og Hornstranda. Áætlunarsiglingar
eru í boði frá Bolungarvík til Grunnavíkur, Sléttu, Hesteyrar og Aðalvíkur. Leiguferðir
eru í boði til annarra staða svo sem Hornvíkur. Dagsferðir eru í boði fyrir hópa til Grunnavíkur þar sem í boði er bátsferð,
stutt gönguferð að kirkjunni í Grunnavík og kaffi og meðlæti drukkið að Sútarabúðum
að lokinni gönguferð. Mikilvægt er að panta ferðir með góðum fyrirvara og best er að hafa
samband í síma 852-4819 eða í síma 854-8263 yfir sumarið.
|